Ohh, það er viðbjóðslega kvalafullt

að þræða þvaglegg upp í þvagrásina. Mér finnst liggja í augum uppi að þessi kona er ekki andlega heil og hefði þurft að fá meðhöndlun sem slík. Það er líka frekar augljóst að hún hefur verið í æðiskasti og ekki verið í neinu standi til samningaviðræðna, með eða án áfengis og lyfja. Það er gríðarlega harkalegt að setja upp þvaglegg án samþykkis og skiptir ekki máli hvort um er að ræða karl eða konu og eflaust hefði mátt leysa það öðruvísi, fyrr eða síðar þurfti konan að pissa. En hvað skal gera þegar kona er í æðiskasti og ræðst á alla í kringum sig?
mbl.is Konu haldið niðri og þvagsýni tekið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Góð spurning Margrét:)  Gaman að rekast á þig hér. 

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 21.8.2007 kl. 14:52

2 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Þegar þú hittir brjálaða konu skaltu fá einhverja til að halda henni niðri og troða þvaglegg upp í klofið á henni á niðurlægjandi hátt. Það leysir allan vanda og kemur í veg fyrir biturleika og reiði í framtíðinni og útilokar að hún muni gera eitthvað slíkt aftur.

Sumarliði Einar Daðason, 21.8.2007 kl. 18:43

3 Smámynd: www.zordis.com

Hefði ekki verið rétt að láta renna af konunni, bræði eða áfengi því það þýðir víst lítið að tjónka við albrjáluðum einstaklingum!  Þetta mál er ljótt hvernig sem á það er litið! 

Trúi hins vegar ekki að konan eigi við geðræna kvilla í kjölfar þessa.  En það er svo allt önnur "ella" ...

www.zordis.com, 21.8.2007 kl. 22:56

4 Smámynd: Garún

Nákvæmlega.  Hvað með blóðprufu.  OG hvernig hefði verið að einmitt bíða þangað til konan róaðist aðeins.  En hvernig er það, ef að lögregla kemur og vill fá að leyta í húsinu þínu og þú segir Nei, kemur hún þá ekki aftur með skal frá dómar eða eitthvað.  Hvernig er það ef ég neita lögreglu um blóðprufu þarf hún þá ekki að fá eitthvað annað leyfi.....eða er ég kannski búin að horfa á of marga lögguþætti á skjánum?

Garún, 22.8.2007 kl. 22:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tær ávöxtur

zzz

Höfundur

Margrét Birna Auðunsdóttir
Margrét Birna Auðunsdóttir

Konukind í leit að framtíð. Hef endalausa þörf fyrir að tjá mig og þess vegna dugir ekki eitt blogg. Annað er opið öllum en hitt er alveg prívat. Það er alveg bráðnauðsynlegt að eiga sér leyndarmál, helst mörg...

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • jákvætt ár
  • jákvætt ár
  • fólk
  • dannemor2
  • dannemor2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband