Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
Skelfileg frétt
28.10.2008 | 13:13
Það var tvennt sem vakti athygli mína við þessa frétt.
Fyrst var það hryllingur, kona grýtt til bana frammi fyrir þúsundum áhorfenda sem eflaust hafa látið vel í sér heyra.
Í öðru lagi hafði þetta ekki átt sér stað ... síðan í ágúst.
|
Sómölsk kona grýtt til dauða |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Búkonuraunir Margrétar
24.10.2008 | 23:55
Ég reiknaði með því að hætta á Flókanum í kringum 20. október og hafa þá sirka tíu daga til að pakka búslóðinni og binda alla lausa enda. En samkvæmt vaktaplaninu átti helgin á undan að vera fríhelgin mín og því hætti ég þann 16., reyndar þann 18. af því að ég skipti vakt. Hvað átti ég eiginlega að gera af mér í hálfan mánuð? Ég sá fram á talsverð leiðindi og hangs.
En nú er heil vika að baki og það hefur satt að segja verið brjálað að gera. Á mánudaginn var fékk ég 25 kassa í Kassagerðinni sem heitir núna Samhentir og er núna að verða búin að fylla þá alla. Og hef náð í nokkra í viðbót úti í búð. Það er engin smá vinna að pakka heilli búslóð, ég er endalaust útkeyrð af þreytu og það er heljarinnar mál að dragnast á lappir fyrir hádegi dag hvern. En það er góð þreyta. Stefnan er að koma búslóðinni í geymslu strax eftir helgi og hafa þá tækifæri til að mála, það er mun einfaldara í framkvæmd þegar búslóðin er farin. Jósep ætlar að hjálpa mér og Frikki bróðir reddar góðum díl á málningu, hann lánar líka rúllur og bakka.
Ég er að fara að hitta tvær bekkjarsystur úr barnaskóla á mánudagskvöldið, það verða okkar fyrstu samskipti í nálega 30 ár. Á þriðjudagskvöld er mánaðarlegur vinkvennahittingur sem er flýtt um viku svo að ég geti verið með. Á miðvikudags- eða fimmtudagskvöld, vonandi, verður Tenerife-myndasýning á Flókanum með ferðalöngum og ættingjum. Og svo verður flugið tekið á föstudagskvöldið. Á laugardaginn verður flatmagað í sveitinni.
Það er skrýtið að tæma eldhússkápana, hvernig fer allt þetta krydd að því að renna út alltaf hreint? Sennilega af því að ég elda ekki nema svona einu sinni í mánuði þegar Drífu-gengið kemur í mat og ég fæ lit og plokk. Ég ætla að verða voðalega raunsæ þegar ég kem mér aftur upp heimili - glætan, þetta segir maður alltaf. Það er allavega á hreinu að ég nenni aldrei nokkurn tímann að elda fyrir mig eina, ætli ég verði ekki bara að koma mér upp einhvers konar matarklúbbi þarna á Egilsstöðum.
En svo er hann Jósep, öðru nafni útlendingurinn Gíó Seppi, að fara að flytja hingað í litla húsið. Þá get ég arfleitt hann að hálfa saltstauknum og teinu (því sem er ekki útrunnið) og piparkvörninni og sætu flöskunni sem fylgdi einhvern tímann með ólífuolíu og ég þori ekki að flytja með því að hún hellist örugglega niður og eyðileggur allt sem í kassanum er. Þá get ég sloppið við að henda henni, hún er alltof sæt til þess. Nógu miklu er ég búin að henda nú þegar, kanilstöngum og negulnöglum, af hverju á ég svoleiðis? Til að gera jólaglögg eða hvað? Það eru allavega það mörg ár síðan að ég get alls ekki munað af hverju ég á kanilstangir. Og þá eru þær pottþétt útrunnar!
En eitt ætla ég að taka með mér, yndislegustu gjöf sem ég hef nokkurn tímann fengið. Servíettuna frá henni Vigdísi vinkonu minni með myndinni af Andrési Önd, Mikka Mús og félögum þar sem allir sitja í hring við borð þar sem gleðin er allsráðandi. Ég límdi servíettuna innan á kryddskápinn og þar hefur hún hangið í friði í nokkur ár. Dálítið skrýtið að taka með sér gamla servíettu. En það sem stelpuskottið sagði við mig þegar hún afhenti mér servíettuna, það var svo yndislegt:
Ef þú verður einhvern tímann döpur og einmana, þá skaltu bara horfa á þessa servíettu og þá verðurðu aftur glöð.
Það segir sig sjálft að slíka gleðiuppsprettu lætur engin heilvita manneskja frá sér. Og alls ekki þegar á að byrja nýtt líf hinum megin á landinu.
Bloggar | Breytt 25.10.2008 kl. 00:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Hefurðu heyrt um Kínverjann...
24.10.2008 | 12:47
sem borðaði svo hratt að hann þurfti að nota prjónavél
Nei, látt'ann flakka
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Guði sé lof fyrir nýja Rósenberg, þess staðar hefur verið sárt saknað
23.10.2008 | 02:22
Það er einhver svona tilfinning sem ég finn stundum þegar ég hitti kórfélaga mína. Eins og ég sé á ættarmóti. Það er ekki að við séum blóðskyld þó að í einhverjum tilvikum sé um það að ræða. Það er bara þessi tilfinning um skyldleika og sá skyldleiki er andlegur.
Við Krunka fórum semsé á Rósenberg til að hlusta á hana Þóru okkar spila. Þóra er eitt gangandi hæfileikabúnt og hefur oft glatt okkur með tónlistarflutningi sínum en núna í fyrsta skiptið var efnisskráin alfarið frumsamin, engir standardar eins og Moondance og slíkt, enda plata handan við hornið og um að gera að kynna hana.
Við vissum ekkert hverjir aðrir yrðu að spila þarna auk Þóru og því var það óvænt gleðiefni að Danni og Raggi voru líka að spila ásamt einum vini sínum, loksins fékk ég tækifæri til að heyra í þeim.
Það voru semsagt þrír gamlir félagar sem tróðu þarna upp og í salnum var því slatti af gömlum félögum sem ekki var síður ánægjulegt að hitta. Svona var það kynnt á fésbókinni, ég ætti greinilega að skoða hana oftar. Meðfylgjandi myndir eru stolnar þaðan, Þóra á þeirri efri og Danni lengst til vinstri og Raggi lengst til hægri á þeirri neðri.
Þannig að óvænt vorum við farin að rifja upp heimsókn í blúndusafn, stöðuvatn sem hvarf, hellaskoðanir í Slóveníu og Póllandi með fjögurra ára millibili, þynnku á röngum tímapunktum og fleira dásamlegt. Þaðan kemur auðvitað þessi tilfinning að vera á ættarmóti, við eigum svo margar minningar sameiginlegar. Afskaplega skemmtilegt þegar maður átti engan veginn von á því. Meira sveitaþorpið, þessi Reykjavík!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Kýrskýrt - 21 efnahagskerfi
22.10.2008 | 14:10
... útskýrð á einfaldan hátt, með kúm.
SÓSÍALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.
KOMMÚNISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.
FASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.
NASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.
SKRIFRÆÐI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni.
HEFÐBUNDINN KAPITALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. Þú selur síðan kúabúið og sest í helgan stein og lifir á fjármagnstekjunum.
SÚRREALISMI
Þú átt 2 gíraffa.
Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.
BANDARÍSKT STÓRFYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og blóðmjólkar svo hina og þvingar til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.
ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR - ÚTRÁSAR KAPITALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess (sem ert þú sjálfur) selur þér síðan aftur réttinn að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eignaréttarsaming að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði.
FRANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess að þú vilt eiga þrjár kýr.
JAPANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju, 'Kúmann', sem nær miklum vinsældum um allan heim.
ÞÝSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig sjálfar.
ÍTALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar. Þú ákveður að fara í hádegismat.
RÚSSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr. Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr. Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr. Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku.
SVISSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 5000 kýr.
Engin þeirra tilheyrir þér í raun. Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.
KÍNVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru.
INDVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr. Þú tilbiður þær.
BRESKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr. Báðar eru með kúariðu.
ÍRASKT FYRIRTÆKI
Allir virðast eiga fjölda kúa.
Þú segir öllum að þú eigir enga. Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið. Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna...
ÁSTRALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Bissnessinn gengur vel. Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það.
NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr. Sú til vinstri er asskoti löguleg.
Þetta er nú ekki samið af Biddunni, ó seiseinei, þetta kom nú bara í tölvupóstinum frá henni Sonju, hún hlýtur þá að vera svona gáfuð...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Yeah but yeah but...
22.10.2008 | 13:39
HVAÐ Á ÉG ÞÁ EIGINLEGA AÐ DREKKA MIKIÐ KAFFI???????????
http://www.dv.is/frettir/2008/10/22/mikid-kaffi-minnkar-brjost/
Þegiðu stelpa og kláraðu úr bollanum þínum
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
IMF - WTF
22.10.2008 | 12:33
|
Sátt um IMF-lán í Seðlabanka |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Það færist nær
21.10.2008 | 17:52
Kassastæðan vex og vex, meira hvað maður á af dóti en ekki vildi ég láta frá mér eitt snitti. Ég fékk í gær 25 kassa í Kassagerðinni sem er núna komin á vel falinn stað í Garðabænum, þökk sé henni Birnu Pálu minni sem nennti að skutlast með mér eftir að við vorum báðar búnar að borða okkur til óbóta í hádeginu á Carpe Diem, þá loksins að fröken Margrét vann eitthvað af viti í Núinu.
En ég finn ekki mestu gersemina, vídeóspóluna frá 1990 þar sem Bidda er myrt á hroðalegan hátt með miklum tilþrifum á fimm mínútum. Svo eru minningartónleikarnir um Freddie Mercury frá því um páskana 1992 á eftir. Einhver hefur fengið hana lánaða, en hver?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Framhjáhaldspæling og losti með osti
20.10.2008 | 00:38
Mér er ekkert farið að leiðast. Alls ekki. Matargestirnir eru farnir og uppvaskið búið og það er bara að verða rólegt eftir að hafa haft einn ellefu mánaða eins og þeytispjald um allt hús. Það var ekki þess vegna sem ég datt inn á er.is og þessa æsispennandi pælingu um framhjáhald. Það byrjar voða sakleysislega með spurningu um hvort einstaklingar í framhjáhaldi beri tilfinningar hvor til annars eða hvort losti nægi.
Fréttastofa Margrétar lýsir sig alveg hlutlausa. Ég treysti mér ekki til að dæma konur sem halda við gifta menn án þess að hafa verið í þeirra sporum. Af hverju hef ég aldrei heyrt um menn sem halda við giftar konur, eru þeir ekki til? Kannski hentar sumum að fá heimsókn einu sinni í viku, svona eins og sumir þurfa að fara á bensínstöð vikulega. Hvað veit maður?
Er þetta kannski eins og að fara með bíl á verkstæði, ég vil láta snerta mig þarna og svona og svona, er það sexí? Myndi maður ekki bara fá sér eins og einn gigolo???
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Að lokinni síðustu vaktinni
19.10.2008 | 03:00
Ég hef áður skipt um vinnu. En aldrei áður hef ég fengið ómæld knús og faðmlög frá ekki bara vinnufélögunum heldur íbúunum líka. Mín verður talsvert saknað
Og ég mun sakna þeirra líka. En samt er ég hætt. Eftir samfelld störf við umönnun fatlaðra í átta ár er ég komin með alveg nóg í þeirri deild. Heilsufarslega séð held ég líka að ég hafi afar gott af því að vinna víðsfjarri eldhúsi og við eitthvað sem gefur meiri hreyfingu en ég hef notið hingað til. Þó ekki væri nema til að lækka BMI-stuðulinn
En ég á eftir að hitta þau bráðum, við eigum eftir að halda Tenerife-myndasýningu fyrir ættingjana og því missir Margrét ekki af. Og svo ætlum við saman á jólahlaðborð í desember svo að þráðurinn slitnar ekki alveg í bráð.
Ég kom við niðri í bæ á leiðinni heim, mig langaði svo hryllilega í dökkt súkkulaði til að hafa með rauðvíninu og svo náði ég mér í pizzu hjá Pizzakóngunum í Hafnarstrætinu, alveg í kæruleysinu bara. Fór svo í voddið og fann gamla gersemi, M*A*S*H með Donald Sutherland. Ég er ekki viss um að ég hafi séð hana áður, minn Hawkeye er Alan Alda.
Svo að nú er þessi kona stútfull af súkkulaði, rauðvíni, pizzu og Donald Sutherland
Myndin er búin og Ian Gillan er að þenja sig á tónleikum frá 1993. Þessi rödd, þessi rödd...
Í fyrramálið þegar ég fer á fætur, þá hef ég engum vinnuskyldum að gegna. Engum formlegum, allavega. Ég á bara eftir að pakka niður einni búslóð eða svo, láta lesa á rafmagnið og loka símanum, hitta mann og annan og fleira svona dútl. Það verður ekkert svo leiðinlegt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)

asgerdurjoh
aslaugosk
atvinnulaus
biddam
birgyrr
birnapala
bjarney
doddiheimur
don
ernamaria
gattin
gledibankinn
gudmundurmagnusson
gurrihar
harpahrund
hronnsig
hross
ipanama
jenfo
jonaa
larahanna
nanna
neytendatalsmadur
olinathorv
omarragnarsson
palmig
rafgeymar
ragnarfreyr
rene
saran
skralli
stebbifr
thorsaari
toshiki
ugla
zordis






