Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Silvía Nótt er æði

Fyndið að Svíar hafi svona gaman af henni því að daginn eftir forkeppnina frægu voru feitar forsíðufyrirsagnir í sænsku blöðunum um eitthvað mjög gáfulegt sem Silvía sagði um Carolu. Hvort hún sakaði hana um mútur eða að vera lesbía eða að hafa sofið hjá einhverjum í dómnefndinni eða eitthvað annað, ég bara man það ekki. En Svíar voru vægast sagt brjálaðir.

En ekki lengur, ætli þeir séu búnir að fatta djókið?


mbl.is Silvía Nótt vekur athygli í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er svo sannarlega listaverk

klara_and_edda_belly_dancing Hvað er listaverk? Hvenær er mynd listaverk og hvenær er hún það ekki? Er þessi tiltekna mynd listaverk eða er hún barnaklám?

Þessi mynd er listaverk. Hún er það vegna þess að hún er vel tekin en líka vegna þess að hún stuðar, hún vekur til umhugsunar. Og það er list. Listaverkum er ekki ætlað að vera falleg, þeim er ætlað að fá okkur til að hugsa, ýmist hrífast eða fyllast andstyggð. Hver man ekki eftir síendurteknum deilum um það?

Myndin sýnir tvær litlar stelpur sem eru að leika sér. Önnur er allsber en hin í nærfötum og með slæðu bundna um mittið. Sú allsbera liggur á gólfinu og kynfæri hennar blasa við áhorfandanum. Og er þetta þá klámmynd? Myndi svona mynd nokkurn tíma birtast í klámblaði, jafnvel þótt það væri blað ætlað barnaperrum? Er eitthvað kynæsandi við hana? 

Litlu stelpurnar tvær eru bara að leika sér og spá ekkert í ljósmyndarann, þær eru fullkomlega afslappaðar eins og börn eiga að vera. Allir hafa kynfæri og þau sem sjást á myndinni eru ekkert öðruvísi en önnur, þau tilheyra bara litlu barni. Þetta má sjá í sturtunum í öllum almenningslaugum. Umræðan um þessa mynd er mjög sorgleg og sýnir tíðarandann vel, þann tíðaranda sem segir að allt sem viðkemur kynfærum sé klám. Það má vel vera að einhver barnaperrinn eigi eftir æsast yfir þessari mynd en hann gæti alveg eins gert það í sundlaugunum. Mér finnst þessi mynd hrífandi vegna þess að í henni er sakleysi, þessi börn eru ekki að aðhafast neitt sem börn eiga ekki að gera og þeim sem finnst það ættu að hugsa sinn gang. Og hún er líka flott uppbyggð og tekin, skemmtileg form. Og það er list.

Hér er þráður um myndina sem mér finnst afskaplega fróðlegur.

Og hana nú.


mbl.is Ljósmynd Eltons John er ekki ósiðleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við erum náttúrlega svo ófríðar, þessar íslensku konur

okkur veitir bara ekkert af þessum rándýru kremumTounge

Annars hefur reynst mér ágætlega að nota bara ólífuolíu enda á ég mér ekki viðreisnar vonCrying


mbl.is Íslenskar konur nota 45 þúsund króna andlitskrem
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var barn í dalnum sem datt oní gat...

Aumingja manneskjan, þetta hefði getað farið mjög illa. Einhver hefur ekki unnið vinnuna sína.


mbl.is Fyrirsæta féll ofan í gat á sviðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaðan þekki ég þennan mann?


Mánudagsmorgunn - HJÁLP!!!

Ég er ekki morgunmanneskja. Ég væri alveg til í að byrja daginn á hádegi. Það sannast á mér að aldrei skyldi seinn maður flýta sér.

Í morgun, þá átti ég að mæta á Kaffi Mílanó í mjög leynilegum erindagjörðum. Ég var búin að stefna þangað nokkrum manneskjum sem ég var beðin um og þetta var dálítið mikilvægt. Svona byrjaði dagurinn:

  1. Lauk upp augunum kl. 7:30 og mundi hverju ég var búin að lofa.
  2. Rauk í sturtu og tókst að brenna mig á heita vatninu og svo missti ég sturtusápuna í gólfið og braut af henni tappann.
  3. Náði að þurrka á mér hárið og klessa einhverju framan í mig, náði svo strætó á réttum tíma, loksins einn ljós punktur.
  4. En ég hafði sterklega á tilfinningunni að ég hefði gleymt einhverju. Svo rann upp fyrir mér þegar ég steig inn í vagninn, að síminn minn hafði orðið eftir á eldhúsborðinu.
  5. Skipti um vagn hjá Ráðhúsinu þar sem stoppa þrjár hraðleiðir sem keyra Miklubrautina. Tók þá fyrstu, leið 1, settist í tóman vagninn og fór að prjóna í rólegheitunum enda langt að keyra inn í Skeifu. En hjá Kringlunni tók vagninn stefnu í Hafnarfjörðinn svo að ég mátti stökkva út og hljóp eins og vitleysingur til baka þar sem ég náði leið 6 á næstu stoppistöð, guðslifandifegin því að hafa sloppið við að lenda í Hafnarfirði.
  6. Kom 10 mínútum of seint á Kaffi Mílanó þar sem liðið var að fara á taugum yfir því að ná ekki í mig. En svo hafðist þetta allt í rólegheitunum. Og síminn er kominn á góðan stað þar sem hann verður ekki viðskila við mig aftur.

Pöddulíf

flugur Ég hef haldið því fram að ég búi ein í litla húsinu í stóra garðinum. En það er víst ekki alveg rétt. Ég er eini tvífætlingurinn með fasta búsetu en hins vegar eru hér margir íbúar með mun fleiri lappir en ég. Hér er til dæmis hún Lóló sem sér um gardínurnar að utanverðu. Hún fær ekkert fyrir annað en að ég hef látið hana afskiptalausa, mest vegna leti. Og svo var ég að láta mig dreyma um að hún gæti komið að gagni. En það gerir hún ekki, skömmin sú. Í gærkvöldi var baðherbergið allt orðið iðandi af litlum flugum og  ég sá fyrir mér að klóakið væri að gefa sig. En svo sá ég ljósið. Réttara sagt, ég sá að glugginn var gersamlega svartur að utan, það voru heilu biðraðirnar sem voru að reyna að komast inn í ljósið. Svo að nú verður glugginn lokaður allavega þar til allar pöddur eru dauðar.

Bara svona fimmtudagur

Þetta fékk ég að borða í vinnunni í dag:

Ofnbakaðan kjúkling með oregano. Kúskús með tómata- og púrrulaukssalati. Klettasalat með ólífum og parmesanosti í stórum flyksum.

Ég get sagt eins og maðurinn forðum, ég vildi að ég væri sofnaður og vaknaður aftur og byrjaður að éta. Eða eitthvað í þá áttina.

Munur að vinna með manni sem lifir og hrærist í eldhúsinu. Hvað er þetta annars með Ítali? Ég hef ekki hitt einn einasta sem fer ekki á kostum í eldhúsinu.

jesus2 Aldrei fór það svo að ekki kæmi niðurstaða í stóra Súperstar-málinu. Ég var nú samt farin að efast um það. Biddalitla ákvað að láta reyna á hæfileikana og  smellti sér í raddprufu fyrir JCS í maí í vor. Ég söng Garden of Getsemane hástöfum fyrir dómnefndina sem var alveg guðslifandi fegin að ég skyldi ekki taka I don't know how to love him eins og allar hinar stelpurnar. Ég meina, það getur tekið á að heyra sama lagið tuttugu sinnum. Þarna var fullt af stórkanónum í raddprufu, krakkar sem hafa sungið út um allt og líka verið að læra söng svo að ég gerði mér ekkert gífurlegar vonir. Það veit ég vegna þess að þarna var slatti af fyrrverandi meðlimum Háskólakórsins. En samt, við vorum ekkert svo mörg, kannski rúmlega tuttugu, sem tókum þátt og miðað við hvernig dómnefndin brosti allan hringinn og spurði mig endalausra spurninga, þá leyfði ég mér að gera mér smá vonir. Það fara nú heldur ekki allar stelpur í fötin hans Ian GillanWink Og svo fékk ég tölvupósta af og til í sumar sem héldu manni volgum. En núna loksins er komið svar, eftir fimm mánuði er þetta lið búið að gera upp hug sinn og svarið er nei. Dálítið áfall fyrir egóið, eða kannski ekki. En ég reyndi þó. Slúður bæjarins segir að það hafi verið skipt um tónlistarstjóra síðan við fórum í prufuna og okkur hafi öllum verið hent, nýi tónlistarstjórinn hafi einfaldlega valið fólk sem hann þekkti. Þetta var allavega ævintýri. Og svo má ég ekkert vera að þessu hvort sem er, ég er í þremur vinnum, rememberLoL

Og svo er bilað að gera í fjáröflunarnefnd þessa dagana, á næstu vikum verður Áramótaskaupið tekið upp og þar munu Háskólakórsfélagar láta vel á sér bera. Við fáum kannski ekkert geggjaðan pening fyrir það - en við verðum allavega fræg, er það ekki???

Svona var nú þessi fimmtudagur hjá Biddunni.


Það er í rauninni

bara ein leið fær til að bæta kjör þeirra sem minnst hafa án þess að hækkunin fari upp allan stigann. Það eina sem dugir er að hækka skattleysismörkin upp í svona 150 þúsund. Það munu eflaust einhverjar háværar raddir heyrast um að þjóðfélagið fari á hliðina því að í mörgum tilvikum er þarna um að ræða heildarlaun fólks sem kæmi þá ekki til með að borga neinn skatt. En á móti kemur að því meira sem fólk hefur á milli handanna, því meir eykst veltan í búðunum og þjóðfélaginu yfirleitt og allir ættu því að geta unað glaðir við sitt. Og þá gæti farið að borga sig að vinna á leikskóla.
mbl.is Launahækkanir tryggi kaupmáttaraukningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta var næstum farið framhjá mér

Hei, nú verð ég að fara að fá 24 stundir. Ég er búin að hringja reglulega síðan í ágúst en aldrei kemur blaðið. En nú fer ég að verða grimm, eru ekki blaðberar á Sólvallagötunni?

Ég var nefnilega að frétta að það hefði komið brot úr færslunni minni um að eignast fatlað barn. Einhverjum hefur fundist þetta merkilegt. Ég hefði allavega alveg viljað sjá þetta. Ef einhver veit hvaða dag þetta var má sá hinn sami gjarnan láta mig vita.

Annars hélt ég að ég væri að blogga um moggafrétt en þessi tilheyrði víst 24 stundum. Eru þessi blöð runnin saman í eitt?


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband